Double Rocker frá Aqara er snjall og stílhreinn rofi sem er hægt að forrita til að gera allt frá því að einfaldlega kveikja ljós yfir í að draga frá gardínunum fyrir þig þegar þú vaknar og kveikja á kaffivélinni á sama tíma! Aðal munurinn á Double Rocker og Single Rocker er sá að sá fyrrnefndi er með eina auka aðgerð sem er bara í boði á Double Rocker. Rofinn virkar þannig að á honum eru fjórar megin aðgerðir:
Eitt klikk – Þetta virkar svipað og flestir rofar í heiminum en þú getur stillt Aqara Single rocker til að gera hvað sem þér dettur í hug ef þú ýtir á hann einu sinni.
Tvöfalt Klikk – Öðruvísi en með flesta aðra rofa þá er líka hægt að ýta tvisvar á Single Rocker og þá framkvæmir hann allt aðra beiðni.
Halda inni – Það er líka hægt að halda inni rofanum og þá virkjast þriðja beiðnin.
Ýta snöggt á báða – Einnig er hægt (bara á Double Rocker) að ýta snögglega á báða hnappana og forrita þannig aðra aðgerð fyrir það.
Sem dæmi þá væri hægt að stilla rofann þannig að ef þú ýtir einu sinni á rofann þá fara ljósin á heimilinu í gang og græjurnar byrja að spila uppáhalds playlistann þinn. Svo ef þú ýtir tvisvar sinnum þá slekkur þú ljósin. Með Double Rocker getur þú svo stillt hann þannig að ef þú ýtir snögglega á báða hnappana þá t.d. slekkuru á öllu snjalltækjum heimilisins fyrir svefninn. Svo ef þú heldur rofanum inni þá fer öryggiskerfið í gang og þú ferð áhyggjulaus í vinnuna.
Skynjarinn skynjar hitastig, raka og pressu í loftinu. Það þarf enga víra eða snúrur til að setja skynjarann upp heldur tengist hann við stjórnstöð heimilisins (Aqara Hub) og þar að leiðandi við heimanetið. Skynjarinn tengist í gegnum Zigbee.
Hægt er að fylgjast með og stjórna aðgerðum í appi og virkar skynjarinn bæði með Android og Apple símum.
Aqara hreyfiskynjarann er auðvelt að setja upp hvar sem er á heimilinu. Með skynjaranum fylgir standur sem er hægt að líma á yfirborð og stjórna í hvaða átt skynjara hausinn snýr.
Skynjarann er hægt að tengja saman við ýmis snjalltæki og hægt er að búa til alskonar skipanir í Xiaomi Home og Aqara Home appinu, t.d gætir þú látið ljósin kvikna þegar þú labbar framhjá eða spilað hljóð.
Til þess að setja upp hreyfiskynjarann þarf að vera með brú(hub) frá Aqara.
Með hjálp Aqara Hub E1 stjórnstöðvarinnar getur þú tengt snjalltæki og skynjara frá Aqara og fengið þannig stjórn yfir snjallvæðingu heimilisins beint í snjallsíma eða spjaldtölvu. Stjórnstöðin notast við Zigbee 3.0 tengingu sem að tryggir hraðari samskipti milli tækjanna og minnkar orkunotkun.
Auðveldara og öruggara hversdags líf
E1 stjórnstöðin vegur einungis 58gr og er því hægt að koma henni fyrir nánast hvar sem er og flytja auðveldlega á milli staða. Auk þess að gefa þér kost á því að snjallvæða heimilið með því að til dæmis kveikja ljós þegar hreyfiskynjarinn nemur hreyfingu eða draga frá gardínunum á morgnana þá varpar stjórnstöðin WiFi neti áfram og bætir því nettenginguna þína að auki!
Stílhreint og snjallt
Aqara stjórnstöðin fer vel inn í skipulag heimilisins og tengist hratt og þægilega við það forrit sem þú vilt. Eina sem þarf er að tengja stjórnstöðina við netið heima hjá þér og stinga því í USB innstungu og þá er hægt að tengjast við Aqara Home, Apple HomeKit og Google Assistant svo fátt eitt sé nefnt.
Stjórnstöð fyrir Aqara skynjara ásamt Zigbee 3.0 skynjurum Styður tengingu við allt að 128 tæki 2W hátalari sem t.d er hægt að nota sem vælu eða vekjaraklukku LED lýsing sem t.d er hægt að nota sem næturljós
Stjórnstöð fyrir Aqara skynjara ásamt Zigbee 3.0 og Matter vottuðum skynjurum. Styður tengingu við allt að 127 Thread/Zigbee tæki. 95dB hátalari sem t.d er hægt að nota sem vælu eða vekjaraklukku. PoE ethernet tengi eða USB-C. Getur keyrt áfram einfaldar skipanir ef netið dettur út. 360° IR blaster getur stjórnað IR tækjum eins og t.d loftræstitæki. Veggfesting fylgir.
2m borði, hægt að bæta við 8m svo að borðinn verði í heild 10 metrar Hægt að stytta um 20cm í einu 16 milljónir lita með RGB CCT og RGBIC tækni Stýranlegt í Aqara Home appinu, Zigbee 3.0 Tengist við Google Home, Alexa, IFTTT, Apple HomeKit og með Matter stuðningi Dansar með tónlist IP44 vatns- og rykvarið
Aqara Zigbee 3.0 ofnastillir, mun styðja við Matter. Hægt að stýra hita í ofn á upplýstum skjá eða með Aqara appinu.
Auðvelt í uppsetningu, passar á flesta ofna með millistykkjum sem fylgja Þarfnast Aqara Zigbee stjórnstöðvar Hægt að tengja við Aqara hita- og rakamæli og önnur Aqara tæki 1 árs rafhlöðuending (2x AA) Barnalæsing