Haltu dýrmætum minningum lifandi og deildu fallegum augnablikum með fjölskyldu og vinum, hvar sem þau eru stödd
Glæsilegur stafrænn myndarammi sem heldur dýrmætum minningum lifandi og færir fjölskyldu og vini nær hvort öðru. Með skýrum 10,1 tommu IPS snertiskjá og fallegri litabirtingu njóta uppáhaldsmyndirnar þínar sín til fulls. Innbyggt Wi-Fi og FRAMEO smáforritið gera þér og þínum nánustu kleift að senda myndir og myndskeið beint úr símanum í rammann, hvar sem þið eruð stödd. Frábær leið til að deila skemmtilegum augnablikum.
Myndaramminn er einfaldur í notkun og býður upp á 16 GB innbyggt geymslurými ásamt möguleika á að bæta við MicroSD minniskorti allt að 64 GB. Snertiskjárinn auðveldar alla stjórnun og snjallir eiginleikar á borð við sjálfvirkan myndsnúning og svefnstillingu tryggja þægilega notkun. Ljós eða dökk viðaráferð gefur rammanum hlýlegt og stílhreint yfirbragð sem passar fallega inn á hvert heimili.
Tilvalin gjöf fyrir fjölskyldu og vini sem vilja njóta góðra minninga á hverjum degi.
Sætir Tulipop lampar sem lífga upp á heimilið Lamparnir eru með LED lýsingu sem þýðir að ekki þarf að skipta um peru í þeim en lýsingin á að endast í mörg ár. Í þeim er minni straumur en venjulega og því nota þeir minna rafmagn og hitna ekki.
Uppfærðu hefðbundið sjónvarp með nýjustu útgáfu af Xiaomi TV Box S. Þetta öfluga Android TV tæki býður upp á hraða og einfalda notkun, hámarksafþreyingu og stuðning við helstu streymisveitur á borð við Netflix, YouTube, Disney+ og fleiri.
Apple AirTag 2gen - öryggi og einfaldleiki í einu litlu tæki.
Apple AirTag (2. gen) hjálpar þér að halda utan um lykla, veski, töskur og aðra mikilvæga hluti á einfaldan og öruggan hátt. Með nákvæmri staðsetningu í gegnum Find My appið geturðu fljótt fundið það sem þú ert að leita að, hvort sem það er heima eða á ferðalagi. AirTag er nettur, endingargóður og fullkominn fyrir þá sem vilja meiri yfirsýn og öryggi í daglegu lífi.
Google TV Streamer spilar uppáhalds efnið þitt í HDR 4K UHD úr uppáhalds android smáforritunum þínum án vanda. TV Streamer tengist við HDMI tengi á sjónvarpi og Wi-Fi netkerfi til að veita þér aðgang að fjölda smáforrita eins og YouTube, Netflix, Disney og fleira.
Hafðu 4G hnetuna frá Huawei með þér í ferðalagið og passaðu að allir komist netið. 4G hnetan frá Huawei er lítill og öflugur búnaður sem býr til WiFi sem að allt að 32 manns geta tengst á sama tíma.