Öryggismyndavél frá Aqara sem virkar líka sem brú fyrir Zigbee 3.0 skynjara og snjalltæki. Öryggismyndavélin nemur hreyfingar og getur sent þér tilkynningar í síma og/eða kveikt á sírenu. Myndavélin er með 110° sjónsvið og þá er líka hægt að stýra henni upp, niður, hægri og vinstri í appinu, svo að allir krókar og kimar sjást.
2K upplausn. 110° víðlinsa. Zigbee 3.0 stjórnstöð fyrir allt að 128 skynjara og tæki. Innbyggður hreyfiskynjari, hljóðnemi og hátalari. Styður Apple HomeKit, Google Assistant og Amazon Alexa.
Stjórnstöð fyrir Aqara skynjara ásamt Zigbee 3.0 og Matter vottuðum skynjurum. Styður tengingu við allt að 127 Thread/Zigbee tæki. 95dB hátalari sem t.d. er hægt að nota sem vælu eða vekjaraklukku. PoE ethernet tengi eða USB-C. Getur keyrt áfram einfaldar skipanir ef netið dettur út. 360° IR blaster getur stjórnað IR tækjum eins og t.d. loftræstitæki. Veggfesting fylgir.
Hurðarlás sem passar á flestar lásaskrár. Lásinn er festur yfir skrár og aflæsist með lykilorði, fingrafari, NFC eða síma. Hægt að búa til lykilorð sem dugar einu sinni, eða yfir ákveðið tímabil. Thread með Matter stuðningi. Þarf Matter over Thread stjórnstöð (t.d Aqara Hub M3) til að aflæsa/læsa/breyta stillingum/snjallsenur úr fjarska. Virkar án Hub ef sími er í Bluetooth fjarlægð. IPX5 vottun á talnaborði, í mikilli rigningu er mikilvægt að geta haft talnaborð í skýli. Lesa nánar hér: Ábyrgðarskilmálar – IP vottun. Fylgir NFC flaga sem hægt er að setja á lyklakippu ásamt hlíf yfir lásinn í viðarlit.
Opnaðu hurðina auðveldlega með U200 Lite retrofit snjall lásnum. Það þarf ekki að bora og lítil fyrirhöfn við uppsetningu. Þetta er lás sem breytir núverandi lás í snjall lás og veitir þér hnökralausa, lykillausan aðgang að heimilinu. Settu símann þinn að NFC-Miðanum sem fylgir með til að fá aðgang að appinu eða notaðu hann til að opna hurðina strax.
U200 Lite styður helstu lásaskrár á markaði í dag eins og ASSA
Leiðbeiningar fyrir uppsetningu og samhæfni lásaskrár má finna hér: https://www.aqara.com/en/u200-installation-methods/ Geggjaður lás á afar hagstæðu verði! Mælt er með að tengja lásinn við M3 brú til þess að fá fulla virkni eins og fjaropnun o.fl. Tengist við öll helstu snjall vistkerfi á markaði í dag eins og Apple Homekit, Alexa, Google Home ofl.
Taktu sjónvarpsstundirnar á heimilinu í nýjar hæðir með glænýju Apple TV. Þessi frábæra græja er komin til þess að kitla öll skynfærin þín með litaleiðréttingu og Dolby Atmos stuðning.
Aqara P2 fjölnotaskynjari - Fylgstu með hurðum og gluggum og fáðu snjallar tilkynningar sem auka öryggi og gera heimilið sjálfvirkara.
Aqara P2 Matter er nettur fjölnotaskynjari sem eykur öryggi og yfirsýn á heimilinu með því að nema og láta vita þegar að hurðir eða gluggar eru opnaðir. Hann sendir tilkynningar beint í snjallkerfið þitt og gerir þér kleift að búa til snjalla sjálfvirkni sem einfaldar daglegt líf og eykur hugarró. Aqara P2 byggir á Matter og Thread samskiptastöðlunum sem tryggir áreiðanlega og trygga tengingu við helstu snjallvistkerfi á borð við Apple HomeKit, Alexa og Google Home.
Uppsetning er einföld og með tengingu við Aqara M3 brú færðu öfluga og samhæfða lausn fyrir snjallheimilið.
Aqara S1 Plus - Snjöll og öflug stjórnstöð sem sameinar snertiskjá og fulla stjórn á snjallheimilinu á einum stað.
Aqara S1 Plus skjábrúin er öflug og notendavæn stjórnstöð til að stýra snjallheimilinu, hún sameinar 6,9" snertiskjá og miðlæga stjórnun í einu tæki.
Þú getur stjórnað ljósum og hita, fylgst með streymi frá dyrabjöllum og myndavélum og fengið mynd beint á skjáinn þegar hringt er, auk þess að hafa fulla yfirsýn og stjórn í gegnum app.
Innbyggður 2 relay rofi og 6 þráðlausir rofar til að stýra ýmsum snjalltækjum.
ZigBee 3.0 stjórnstöð og Matter over bridge stuðningur til að tengja Aqara búnað við önnur vistkerfi á einfaldan hátt.
Hægt að streyma myndavélum í gegnum skjáinn, ef einhver hringir dyrabjöllu þá kemur streymi frá myndavél á skjá.
Sveigjanlegt stjórnborð, hægt er að stilla þemu, búa til allt að 10 stjórnborð fyrir stýringu á snjallbúnaði.
Hægt að fylgjast með orkunotkun tengdra tækja, hægt að sækja skýrslu um notkun heimilisins.
í boði. Skjárinn kveikir á sér þegar hann skynjar að einstaklingur nálgast, nær allt að 2.5m fjarlægð og mismunandi stillingar í boði.
Aqara G100 – Veðurþolin 2K öryggismyndavél fyrir innan- og utandyra notkun
Aqara G100 er öflug og veðurþolin öryggismyndavél sem hentar jafnt inni sem úti. Hún skilar skýrri 2K mynd (2304 x 1296) og er með f/1.8 ljósopi sem tryggir góð myndgæði við mismunandi birtuskilyrði. Innbyggð IR nætursjón gerir þér kleift að fylgjast með allan sólarhringinn. Myndavélin styður upptöku beint á microSD kort og getur tekið upp allan sólarhringinn (24/7). Einnig er hægt að tengja hana við NAS geymslu eða nýta skýjalausn Aqara til að tryggja örugga vistun gagna. Aqara G100 styður hreyfiskynjun og manngreiningu, sem eykur öryggi og dregur úr óþarfa tilkynningum. Hún tengist helstu snjallvistkerfum á markaðnum, þar á meðal Apple HomeKit, Amazon Alexa og Google Home.
Helstu eiginleikar
2K upplausn (2304 x 1296) með skýrri og nákvæmri mynd. Hentar fyrir innan- og utandyra notkun, IP65 veðurvörn. Styður allt að 512GB microSD kort fyrir staðbundna upptöku. Hægt að snúa 360°. Wi-Fi 6 (2.4GHz) tenging. Styður hreyfiskynjun og manngreiningu. Rafmagn í gegnum USB.
Aqara G100 er hagkvæm og öflug lausn fyrir þá sem vilja áreiðanlega öryggismyndavél með háum myndgæðum og fjölbreyttum tengimöguleikum.