Snjall innstungan frá Aqara breytir hvaða raftæki sem er í snjall tæki. Kveiktu og slökktu á hvaða raftæki sem er í símanum, með Aqara Home smáforritinu. Hægt að sjá stöðu rafmagnsnotkunar innstungunar hverju sinni.
Wireless Switch Mini frá Aqara er snjall og stílhreinn rofi sem er hægt að forrita til að gera allt frá því að einfaldlega kveikja ljós yfir í að nota hann sem dyrabjöllu. Rofinn getur líka verið öryggishnappur fyrir heimilið þegar hann er paraður með Aqara Hub. Það virkar þannig að þegar það er virkt og það er ýtt á hnappinn þá fer tilkynning í símana sem eru tengdir við hann og það kemur hljóð úr Aqara Hub.
Rofinn virkar þannig að á honum eru þrjár megin aðgerðir og tvær auka:
Eitt klikk – Þetta virkar svipað og flestir rofar í heiminum en þú getur stillt Aqara Single rocker til að gera hvað sem þér dettur í hug ef þú ýtir á hann einu sinni. Tvöfalt klikk – Öðruvísi en með flesta aðra rofa þá er líka hægt að ýta tvisvar á Wireless Switch Mini og þá framkvæmir hann allt aðra beiðni. Halda inni – Það er líka hægt að halda inni rofanum og þá virkjast þriðja beiðnin. Öryggishnappur – Öðruvísi með Wireless Switch Mini og Single Rocker þá getur sá fyrrnefndi líka verið öryggishnappur fyrir heimilið. Dyrabjalla – Aqara Wireless Switch Mini getur líka verið dyrabjalla.
Sem dæmi þá væri hægt að stilla rofann þannig að ef þú ýtir einu sinni á rofann þá fara ljósin á heimilinu í gang og kaffivélin byrjar að hella upp á. Svo ef þú ýtir tvisvar sinnum þá slekkur þú ljósin. Svo ef þú heldur rofanum inni þá fer öryggiskerfið í gang og þú ferð áhyggjulaus í vinnuna.
Aqara glugga- og dyraskynjarinn gerir heimilið þitt bæði öruggara og snjallara með því að senda strax skilaboð í Aqara Hub stöðina þína þegar gluggar eða dyr eru opnaðar. Þessi fjölhæfi búnaður bætir öryggið og auðveldar sjálfvirknivæðingu heimilisins – til dæmis með því að kveikja á ljósunum þegar þú kemur heim á kvöldin! Skynjarinn er með lím á bakhliðinni sem gerir uppsetningu leikandi létta!
Aqara Doorbell Camera Hub G410 býður upp á skýra 2K upplausn, snjalla greiningu og snjalla heimastýringu í einu tæki. Háþróað mmWave radar og andlitsgreining, innbyggð brú fyrir bæði ZigBee og Thread/matter snjalltæki. Því hægt að tengja snjall lása frá Aqara við bjölluna. Styður microSD kort fyrir upptökur. Að sama skapi er hægt að fæða hana með rafhlöðum eða beintengja með vírum. Afar fjölhæf og öflug dyrabjalla fyrir heimilið. Tengist við öll helstu snjall vistkerfi á markaði í dag eins og Apple Homekit, Alexa, Google Home ofl.
· 2K upplaus og víðlinsa f/1.8 · Innbyggð brú og því hægt að tengja aðrar snjall vörur við. · mmWave radar fyrir nákvæmari auðkenningar. · Styður 6 x AA rafhlöður eða 12V-24V AC/8V-24V DC · Styður allt að 512GB microSD kort. · Mælt með að hafa Chime innan við 5m frá bjöllu · Styður HomeKit Secure vide
Sniðug lausn fyrir þá sem vilja snjallvæða ljósastýringuna heima hjá sér. Aqara Smart Wall Switch H1 festist beint í veggdós og þarf því ekki bora sérstaklega fyrir hnappnum.
Sniðug lausn fyrir þá sem vilja snjallvæða ljósastýringuna heima hjá sér. Aqara Smart Wall Switch H1 festist beint í veggdós og þarf því ekki bora sérstaklega fyrir hnappnum.
Viðveruskynjari frá Aqara sem er hægt að gera ótrúlega snjalla hluti með Stærð: 64 × 64 × 29.5 mm. IPX5 rakavarið. Greinir nærveru eða fjarveru fólks, föll, inn- og útgöngur, nálgun og fjarlægingu, lýsingu og rauntíma skynjun margra persóna og svæðisstillingar. Greinir allt að 5 persónur. Tengist beint með WiFi, þarf ekki stjórnstöð.
Öryggismyndavél frá Aqara sem virkar líka sem brú fyrir Zigbee 3.0 skynjara og snjalltæki. Öryggismyndavélin nemur hreyfingar og getur sent þér tilkynningar í síma og/eða kveikt á sírenu. Myndavélin er með 110° sjónsvið og þá er líka hægt að stýra henni upp, niður, hægri og vinstri í appinu, svo að allir krókar og kimar sjást.
2K upplausn. 110° víðlinsa. Zigbee 3.0 stjórnstöð fyrir allt að 128 skynjara og tæki. Innbyggður hreyfiskynjari, hljóðnemi og hátalari. Styður Apple HomeKit, Google Assistant og Amazon Alexa.